Stoðir er eignarhaldsfélag sem m.a. á 99% hlut í Tryggingarmiðstöðinni (TM) og 40% hlut í Refresco, evrópska drykkjarvöruframleiðandanum.
Meðal annarra eigna Stoða má nefna hlutabréf í danska drykkjavöruframleiðandanum Royal Unibrew og eingarhluti í fasteignafélögunum Nordicom og Bayrock.
Hluthafar Stoða eru á annað hundrað talsins, að mestu íslenskar og erlendar fjármálastofnanir. Núverandi hluthafar eignuðust allt hlutafé í Stoðum í júní 2009, í kjölfar nauðasamninga þar sem kröfuhafar breyttu kröfum sínum í hlutafé í Stoðum, samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu Stoða.
Stærstu eigendur Stoða eru Glitnir, NBI – Landsbankinn og Arion banki. Stjórn Stoða skipa Eiríkur Elís Þorláksson (formaður), Hermann Már Þórisson og Sigurjón Pálsson. Framkvæmdastjóri Stoða er Júlíus Þorfinnsson.