27.05.2009
Kröfuhafar samþykkja nauðasamninga
Í gær, þann 26. maí 2009, hélt umsjónarmaður nauðasamninga Stoða fund með kröfuhöfum félagsins. Á fundinum voru nauðasamningatillögur félagsins samþykktar samhljóða. Umsjónarmaðurinn lýsti í framhaldinu yfir því að nauðasamningartillögur hefðu verið samþykktar. Tillögurnar verða nú sendar til Héraðsdóms Reykjavíkur til staðfestingar.