22.04.2009

Hluthafafundur þann 30. apríl 2009


Stjórn Stoða boðar hér með til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 30. apríl kl. 17:00 í höfuðstöðvum félagsins að Hátúni 2b, 105 Reykjavík, á annarri hæð

Dagskrá:

1. Tillaga um að hluthafafundur gefi stjórn félagsins heimild til að halda áfram með fjárhagslega endurskipulagningu félagsins samkvæmt áætlun

2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:

a. Tillaga um að breyta nafni félagsins í Stoðir hf.  Tillagan felur í sér breytingar á 1. grein í samþykktum félagsins.

b. Tillaga um að breyta heimilisfangi félagsins.  Tillagan felur í sér breytingar á 2. grein í samþykktum félagsins.

c. Tillaga um að lækka hlutafé félagsins að fullu og auka það síðan í hið lögbundna lágmark, 4.000.000 króna.  Tillagan felur í sér breytingar á 4. grein í samþykktum félagsins.

d. Tillaga um að afturkalla heimild stjórnar félagsins til útgáfu nýs hlutafjár.  Tillagan felur í sér breytingar á 4. grein í samþykktum félagsins

e. Tillaga um að breyta reglum um hvernig boða skuli til hluthafafundar.  Tillagan felur í sér breytingar á 8. grein í samþykktum félagsins, nánar tiltekið á undirkafla sem nefnist „Fundarboðun“.

f. Tillaga um að aðalfund skuli halda fyrir lok ágústmánaðar á hverju ári.  Tillagan felur í sér breytingar á 9. grein í samþykktum félagsins.

g. Tillaga um að breyta samþykktum félagsins á þann hátt að kaflaheiti og undirkaflar verði númeraðir.


3. Önnur mál

Hluthafar geta greitt tillögunum atkvæði skriflega.  Atkvæðaseðlar verða aðgengilegir á skrifstofu félagsins frá og með föstudeginum 24. apríl 2009.  Hægt er að greiða atkvæði á skrifstofunni.  Hluthafar sem óska þess að fá heimsenda atkvæðaseðla verða að bera fram ósk sína til félagsins fyrir 24. apríl 2009.  Skila skal atkvæðaseðlum á skrifstofu félagsins eigi síðar en miðvikudaginn 29. apríl 2009 kl. 16:00 en einnig er hægt að afhenda þá á hluthafafundinum sjálfum.  Einungis eru gild atkvæði þeirra sem skráðir eru hluthafar í félaginu samkvæmt hluthafaskrá á þeim tíma. 

Upplýsingar fyrir fundinn, þar á meðal tillögur stjórnar og greinargerð verða aðgengileg á skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 23. apríl 2009 og verða þær upplýsingar sendar til þeirra hluthafa sem svo kjósa.


Reykjavík, 22 apríl 2009


Stjórn Stoða (FL GROUP hf. )

Frekari upplýsingar

Sími: 591 4400
Netfang: info@stodir.is

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi