Tryggingamiðstöðin (TM) býður alhliða vátryggingarþjónustu og víðtæka fjármögnunarþjónustu, í eigin nafni eða í samstarfi við aðra. TM á að baki meira en hálfrar aldar sögu farsælla viðskipta við tugþúsundir íslenskra fyrirtækja og heimila. Stoðir eignuðust nær allt hlutafé (99,1%) í TM árið 2007.
Markmið TM er að veita viðskiptavinum yfirburðaþjónustu á öllum sviðum - hvort sem er við kaup trygginga, úrlausn tjóna, í lánaviðskiptum eða greiðsluþjónustu.
Hjá félaginu starfar um 140 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða þjónustu á mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni. Síðastliðin 4 ár hefur TM mælst með ánægðustu viðskiptavinina á íslenskum tryggingamarkaði, skv. niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar.
Höfuðstöðvar TM eru í Síðumúla 24 í Reykjavík og umboðsskrifstofur TM eru 22 talsins víðs vegar um landið. Forstjóri TM er Sigurður Viðarsson.